Aðalbjörn
Könnun
Mesta sjokk síðustu daga!?
Ég var að frétta að ég er ættleidd/ur!
0 atkvæði

Angelina Jolie og Brad Pitt voru að skilja!
0 atkvæði

25% aldraðra yfir 80ára...!!!
4 atkvæði

Ég var að verða pabbi og vissi ekki af því!
0 atkvæði

Pabbi barnsins míns vissi ekki að ég væri ólétt!
1 atkvæði

Guð, þarftu að spurja!!
1 atkvæði

Ég er svo fullkomin/n að ekkert kemur mér á óvart...
2 atkvæði

Ráðleggingar Sigríðar um jólagjafainnkaup fyrir foreldra...
0 atkvæði

Sjokk... ég er ekkert í sjokki... SJOKK... ég!!?
1 atkvæði

Þessi skoðanakönnun...
1 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 10
Leitarbox

-
-
16.02.2011 17:27:14 / Aðalbjörn

Hey-hey-hey!

Hey Fólk...

Þið sem virðist ennþá vera að ráfa inn á þessa síðu (ekki lýgur teljarinn, með 15 heimsóknir á dag :O   )...

Ég ætla að byrja aftur að leika mér að þessu yndi :D

.... bara ekki hér... nei, ekki hér... það er svo mikið vesen...

Þannig að:

http://adalbjorn.wordpress.com

Kíkið á þetta :)

Ykkar,
-Aðalbjörn

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.09.2008 16:26:44 / Aðalbjörn

Hvað tekur það einn mann langan tíma...

... að sækja eitt skópar upp í herbergi 5203!?



Gríma getur svarað því :haha:

Annars er allt fínt héðan... maður er náttlega orðinn stoltur MA-ingur í 1 bekk nokkrum E!

Þar að auki er maður orðinn hluti af því glæsilega íþróttafélagi Þór! ( búið að skrifa undir samninga og allt!)



Það leiðir því að sjálfsögðu af sér að maður getur ekki verið vitlaus ( ég meina, ég er nú eftir allt saman í MA!! ) og KA sökkar!! ( það er nú meira hverju er hægt að stinga inn í smáaletrið í samningum frá Þór... )

Kennararnir ALLIR frábærir NEMA ákveðinn einstaklingur, en hann er haldinn fóbíu á alvarlegu stigi fyrir foreldrum nemenda og vitlausum svörum á eyðublöðum ( sem er sennilegast ástæðan fyrir því hann kennir í MA, lítið um foreldra ( þeir fóru allir í VMA ) og þar sem við erum í MA eru öll svarblöð að sjálfsögðu rétt!). Okkar von er hinsvegar að hann aðlagist því harða samfélagi sem þekkist í MA og byggist á almennri talhæfni milli nemenda og kennara, almennum hárgreiðslureglum og persónulegu hreinlæti... 

... annars fínn náungi sko... ( fyrir Bigga ;) )

Vistin er ÆÐI!!! Ef þér skilduð einhverntímann eiga leið hjá Málmey ( herbergi 1106 ) þá endilega kíkiði í heimsókn! þá á ég að sjálsögðu við innan leifilegs heimsóknartíma ( sem samanstendur þó aðallega af svefntíma Bjarka ;) )

MA_heimavist



Sögur herma einnig að dönskukennarinn okkar hafi lent í vandræðum með að finna nafn á samband okkar Bjarka... henni fannst það víst eitthvað vandræðalegt að segja að hann væri sambýlismaður minn... :haha: ...

image



Nýverið hefur komið í ljós að Ke þjáist af köfnunarsvefni... einskonar "grímusfaðmus" einkenni...

Lexi hrýtur...

... Hátt!!

Ég hef einnig nýtt mér góðgæsku ættingja minna skammarlaust og droppað í mat... og svo bara horfið aftur...

... en mér finnst líka vænt um þau :)

En ekki meira í bili...

-Aðalbjörn

P.S. sakna ykkar allra ógeðslega mikið... já Svala, þín líka ;)


» 11 hafa sagt sína skoðun

14.05.2008 23:27:28 / Aðalbjörn

FM957... HVAÐ er nú ÞAÐ!?

 


Ég var svona að spá... FM957 er ekkert FM957 allstaðar er það!?

Einhversstaðar heyrði ég að hún væri FM93,6, og svo næst hún víst líka á langbylgjunni...

Þetta kom mér til að hugsa djúpt, fyrst FM957 er ekki alltaf FM957 en segist alltaf vera FM957, þá er greinilega ekki allt sem sýnist... eins og segir í "Svanaprinsessunni" ( muniði ekki eftir henni... ljóska sem breytist í svan, galdrakall sem breytist í leðurblöku og prins á skínandi hesti! ( sem btw breytist ekki í neitt en syngur voða vel... ) ).

En hvort er þá raunverulegt FM957, FM 95,7 eða FM 93,6?

Og eru þá kannski fleiri FM957 til!?

þetta er ráðgáta sem vert er að skoða...

Af hverju getur FM957 ekki bara verið FM957 allstaðar!? þetta er alveg hreint ótrúlegt!

En að öðru.

Ég velti fyrir mér hver munurinn væri á helstu miðlum landssins, það er að segja, helstu netmiðlum.

Og ég held að engan skuli undra það að ég tók fyrir www.mbl.is og www.visir.is

Munurinn var semsagt þessi... ég fór inn á forsíðurnar og skoðaði vinsælustu fréttirnar.

Þessar fyrirsagnir stóðu þar efst á lista.

www.visir.is - Austurrískur karlmaður játaði í dag að hafa myrt fimm ættingja sína með exi. Lögreglan í Vínarborg staðfesti þetta síðdegis.

www.mbl.is - Manuel Uribe, eitt sinn þyngsti maður heims, keppist nú við að ná nýju meti um mesta þyngdarmissinn.  Manuel, var einu sinni hálft tonn að þyngd, hefur nú þegar lést um 235 kíló, og stefnir á að missa 130 kíló til viðbótar á næstu árum.

Humm, lengi hefur landinn nú talið moggann áreiðanlegasta miðilinn, en
ég skipti skjótt um skoðun. Af hverju www.mbl.is vill heldur fjalla um offitusjúkling sem stefnir á Guinnes ( bókina, ekki bjórinn) en enn einn austurríska brjálæðinginn er mér hulin ráðgáta.


En, rétt eins og með FM957 málið, þá er alls ekki allt sem sýnist.

Huga má að því ég skoðaði aðeins vinsælustu greinarnar á þessum vefjum, og spurning hvort það er þá ekki frekar almenningur sem er orðinn svo þreyttur á því að hneykslast yfir alvöru vandamálum eins og austurrískum og þýskum brjálæðingum að hann er farinn að sækjast í eitthvað bitastæðara... og hvað er bitastæðara en 500 kílóa karlmaður spyr ég nú bara!




Og er það þá ekki bara svarið!? Mogginn er ekkert verri en Vísir, Mogginn
bara fylgir straumnum en Vísir er soldið út úr tískunni...

Og er það ekki kannski bara vandamálið... almenningur krefst fjölbreytni... og ef FM957 væri alltaf FM957 þá væri það nú varla mikil fjölbreytni... þá myndi FM957 bara horfa á eftir mogganum fara með straumnum á meðan hlustendaverðlaunin frægu myndu enda á forsíðu Vísis...

Og þá yrði úti um FMhnakkanna , en í staðin myndi koma ný kynslóð  náfölra, rauðhærða og frekknóttra Moggahnakka sem myndu gera það að tísku að hanga inni alla daga og lesa moggann ( og hver veit... kannski yrðu stór nördaleg gleraugu með einu setti spöngum bara nýjasta trendið ;) )



En ekki meira frá mér í dag...

-Aðalbjörn | anti-FMhnakki...


» 14 hafa sagt sína skoðun

02.05.2008 18:03:17 / Aðalbjörn

Good times, good times...

Hef ekki tíma í mikið blaður akkúrat núna... ætla bara að láta vita af nokkrum breytingum...

Aðgerðalisti:

*Nýtt lúkk
*Um mig
*Minnz
*Venner
*Ný könnun
*Myndir
*Ný grein

búið og er á leiðinni ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.03.2008 23:40:51 / Aðalbjörn

SÖNGVAKEPPNI SAMFÉS!!!

Jæja, var að koma að sunnan þar sem ég var einn af dönsurunum í framlagi okkar, Beisisins, í Söngvakeppni Samféss.

Einar söng lagið "Ég elska menn" úr leikritinu okkar, og vorum við drengirnir, Ég, Sigurjón, Björgvin og Hjalti, dansarar í því atriði :haha:

slógum við að sjálfsögðu í gegn og hefðum að sjálfsögðu unnið titilinn "skemmtilegasta lagið" eða "athyglisverðasta (/sjúkasta?) atriðið", ef forsvarsmenn keppninnar hefðu verið svo frumlegir að hafa það í aðalkeppninni ( ég veit ekki betur en sá titill hafi verið í nánast öllum forkeppnunum... eða erum við norðlendingar bara svona frumlegir? )

En já, okkur gekk frábærlega, unnum reyndar engann titil, en ég er sannfærður um að við höfum í rauninni verið í fjórða sæti, Ragnhildur Steinunn sagði jú að okkar atriði væri "alvöru", hvort kynnarnir hafi ekki verið að hvetja okkur til þess að taka þátt í laugardagslögunum næst, mér heyrðist það ;)

En geri hérna tilraun til þess að senda beinann link inná síðu þar sem hægt er að skoða upptöku frá keppninni ;) okkar atriði byrjar rúmlega 1:13,30

Vessegú ;)

http://www.ustream.tv/recorded/exS8Pe5RwDCAylWvRuGcwE0MZvteE4Pm

» 7 hafa sagt sína skoðun

21.02.2008 19:26:47 / Aðalbjörn

Heimurinn

Heimurinn er gerður úr lygum samfélagsins, samfélagið þrýfst á lygum, og af lygum koma upp fordómar.

Það er vegna fordóma að við erum öll í hlekkjum, við erum hrædd við að vera við sjálf, og þess vegna ljúgum við.

Lygar eru undirstaða mannlegs eðlis, ekki vegna illgirni, heldur hræðslu.

Það er hræðslan sem elur illgirnina, en það sem við skiljum ekki viljum við forðast, og ljúgum þess vegna.

Mannlegt eðli þráir frelsi og öryggi, hlutir sem fara aldrei saman, því í örygginu felast lygar, og aðeins í sannleikanum getur maður fundið frelsi.

Það er þá okkar að velja hvort við viljum frelsi eða öryggi, sannleika eða lygi.

Við segjum hvert öðru að sannleikurinn sé hið eina rétta, af hverju ljúgum við þá, erum við virkilega svona miklir sadistar, eða erum við öll svona hrædd?

Við segjum hvert öðru að sannleikurinn sé hið eina rétta, erum við þá ekki öll syndgarar, því enginn hefur alltaf sagt sannleikann!

Sá sem segir satt er frjáls, en aðeins sá sem er hreinskilinn finnur öryggi í frelsinu, allir aðrir finna fyrir fordómum samfélagsins, því þeir sem eru öruggir hræðast frelsið og dreyfa fordómum út í það, sem festir þá í hlekki því sá sem er ánægður í öryggi sínu vill aldrei verða frjáls.

Þeir sem þrá að verða frjálsir og eru óánægðir í öryggi sínu þrá að finna hugrekkið til þess að segja sannleikann og frelsast.

Sá sem er frjáls er hamingjusamur ef hann getur lifað í sátt við frelsið, en þeir sem þrá öryggið frekar en frelsið og hafa upplifað frelsið munu aldrei fá það sem þeir vilja því öryggið er fullt fordóma.

Ég er ekki frjáls maður, ég lifi í hlekkjum öryggisins. En ég sé fyrir mér að verða frjáls maður einn daginn, það er að segja, verði ég nógu hugrakkur til þess að standa upp og mótmæla... Ég þrái frelsið og því sem því fylgir, án þess verð ég aldrei ég.

Þess vegna hvet ég alla sem þetta lesa til þess að frelsast, segja það sem þeim liggur á brjósti og verða hamingjuöm.

Kveðja,
Aðalbjörn

ps. veit ekki hversu gáfulegt þetta virðist allt saman, er fárveikur... en þetta er pæling...

» 11 hafa sagt sína skoðun

09.02.2008 12:07:35 / Aðalbjörn

Smá leikur fram að næsta bloggi - veriði nú dugleg að taka þátt elskurnar mínar...

1. Hver ert þú?

2. Erum við vinir?

3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?

4. Ertu hrifinn af mér?

5. Langar þig að kyssa mig?

6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.

7. Lýstu mér í einu orði.

8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?

9. Lýst þér ennþá þannig á mig?

10. Hvað minnir þig á mig?

11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?

12. Hversu vel þekkiru mig?

13. Hvenær sástu mig síðast?

14. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?

15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?

» 9 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 21:01:09 / Aðalbjörn

Beljan Búkolla

Einu sinni var Belja sem bar nafnið Búkolla eftir langömmu sinni heitinni. Þó að Búkolla væri bara fjórtán ára, var hún orðin fallegasta beljan í öllu fjósinu. Hinar ungbeljurnar öfunduðu hana allar, ekki bara útaf því að hún var sú fallegasta, heldur líka útaf því að Búkolla gamla, langamma Búkollu yngri, var frægasta belja sem nokkurn tímann hafði sést nálægt fjósinu.

Búkolla var ósköp skotin í ungu nauti sem hét Boli, en því miður hafði Boli horfið á brott einn daginn, hugfanginn af kvígunni Rósu sem átti heima ekki svo langt í burtu. Hann hafði farið á klaufinni og fengið far með bíl með tveimur undarlega ormalaga myndum á hliðinni, sem strákurinn í nýju nike íþróttaskónum kallaði SS.

 “Engar áhyggjur elsku búkolla mín”, sagði strákurinn í nýju nike íþróttaskónum, “Ég kaupi mér bara skyr.is dollu og nýja adidas skó og þá getum við farið að leita að honum Bola þínum og bjarga honum úr illum klóm SS mannsins með brúna permanentið” 

“Ertu brjálaður,” Sagði beljan Búkolla þá, ”Ég er ekki búin að hitta hann í tvær vikur, ég man varla hvernig hann lýtur út, og hvað þá að hann hafi einhverntímann tekið eftir mér. Og svo er ég öll út í skít, grænmeti í tönnunum og með ósnyrtan hala. Sénsinn að hann fari eitthvað að velja mig fram yfir kvíguna Rósu. Ekki að ræða það að ég fari eitthvað að láta sjá mig á almannafæri eftir þesskonar mannorðssjálfsvíg.”

 Og jafnvel þótt að strákurinn í nýju nike íþróttaskonum skyldi ekki beljumál áttaði hann sig á því að nú væri kominn tími á mjaltir og að bóndinn, hann Karl Sigurðarson faðir hans, væri ekkert hrifinn af því að strákurinn í nýju nike íþróttaskonum talaði við beljuna búkollu og hætti því við áform sín um að hjálpa nautinu Bola.

 Þannig lauk þá þeirri sögu; Beljan Búkolla varð óhamingjusöm mjólkurkýr, giftist forljótu og lötu rauðu nauti og eignaðist með honum sjö litla kálfa, sem allir dóu á unga aldri, Strákurinn í nýju nike íþróttaskónum fékk aldrei að smakka skyr.is í dollu né eignaðist nokkurntíman nýja adidas skó, kvígan Rósa endaði alein og allslaus, Bóndinn Karl Sigurðarson varð ánægður af því að sonur hans, strákurinn í nýju nike íþróttaskónum, hætti að tala við beljur og nautið Boli endaði sem heiðursgestur í grillveislu Framsóknarflokksins.  

 Skilaboð sögunnar : Það skiptir engu máli hver eða hvað þú ert, hvernig þú ert klædd/ur, lýtur út eða lyktar, ef þú fylgir draumum þínum ekki eftir eða lætur undan og verður eitthvað sem þú vildir aldrei verða, áttu eftir að enda óhamingjusamur/söm. 

En ef það gerist, vertu þá bara fegin að þú ert ekki heiðursgestur í grillveislu Framsóknarflokksins.  

 Kveðja, 

Aðalbjörn 

P.S. Svala mín, sættiru þig frekar við yfirskriftina "Beljan Búkolla"?


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 20:15:18 / Aðalbjörn

Eru kvenmenn af einhverri annarri tegund?

Ja, það er spurning sem er þess verð að spyrja!

 Gæti það mögulega verið að kvenmenn séu af annarri tegund en menn? Það er allavegana eina útskýringin sem ég get hugsað mér að sé ástæðan fyrir þessum ótrúlega mun sem er á okkur, það er að segja, mér sem karlmanni og svo kvenþjóðinni allri!

 Dæmi 1:

Ef stelpa segir eitthvað við aðra stelpu og hin stelpan móðgast, þá fara þær í kerfi og talast ekki við svo mánuðum skiptir. Þær láta eins og algjörar T.... við hvora aðra og láta sem þær hafi aldrei þekkst, jafnvel þótt þær hafi verið bestu vinir fyrir þennan atburð. Þær niðurlægja hvor aðra þegar hin er ekki viðstödd, og ráðast á æru hennar!

 Hvað gerist hinsvegar ef við skiptum stelpunum út fyrir stráka? Nú, venjulega endar það á rifrildi þar sem vitsmunir ráða úrslitum ( eins "oft" og það gerist nú;), eða þá að sá sem móðgaðist ræðst á hinn og þeir hnakkrífast, en þegar það er búið geta þeir orðið bestu vinir aftur! Þeir eru ekki kallaðir Druslur eða tíkur það sem eftir er, þeir eru bara aular og hálfvitar í hálftíma, svo búið!

 En þetta er ekki eini munurinn sem er á strákum og stelpum. Það virðist prentað inn í þennan heim að strákar megi ekki faðmast, þeir mega ekki leiðast, ekki einu sinni brosa til hvers annars, þá eru þeir umsvifalaust stimplaðir hommar! En á meðan sofa stelpurnar ofan á hver annarri, ganga hönd í hönd niður gangana og kyssast bless. Ég er ekki að segja að strákar ættu eitthvað að vilja sofa ofan á hvor öðrum eða leiðast niður gangana, en það að mega ekki sýna minnsta vott um kærleika er nú einum of...

 Þar kem ég aftur að spurningu minni! eru kvenmenn af einhverri annarri tegund? Fólk virðist halda það, að hugsa sér að karlar og konur hugsi svo mismunandi að það þyki jafn fréttnæmt og þegar Framsóknarmenn og Vinstri grænir á NA-landi urðu loksins sammála um eitthvað ef karl og kona geti sæst á hvað skuli horfa á í sjónvarpinu!

 Fólk talar sífellt um jafnrétti. Er það jafnrétti að kona megi ganga í pilsum en karl ekki? ég er ekki að segja að það sé bannað með lögum, en ég spyr, gott fólk, hvernig myndi ykkur lítast á það ef ég dyllaði rassinum á leið minni niður laugaveginn, sífellt snúandi til að skoða búðarglugganna, og ég tala nú ekki um skóbúðirnar, grrrr.....

Nei, ykkur litist ekki á það, er það? Konur tala um að þær séu kallaðar druslur ef þær sofa hjá mjög mörgum körlum, ja, það er nú ekkert miðað við hvað við karlarnir værum kallaðir, og við þyrftum ekki að sofa hjá nema einum! Kynjamisrétti segi ég!

 Það hlýtur nú bara að vera misrétti þegar strákar eru allt í einu orðnir að stelpum, bara af því að þeir láta gelgjulega svona við og við, ég meina, hver sagði að stelpur hefðu einkarétt á gelgjunni?

Og svo er það álit kvenna á mönnum! Mikill hluti vina minna er af hinu kyninu, ja, kannski bara meirihlutinn, en það er nú bara eðlilegt, kvenmenn eru fleiri yfir höfuð í þessum heimi en karlar.

En af því að ég á svona marga kvenvini þá hafa vaknað spurningar: Af hverju í ósköpunum er hann svona mikið með stelpunum? Er hann kannski svona hrifinn af þeim, svona ægilegur player? Er hann kannski hommi og er bara að tala um okkur hina, svona á sama hátt og stelpurnar? Óvissan er ótrúleg hjá sumum! Dettur fólki aldrei í hug að annað fólk geti líka verið skemmtilegt, og strákar mættu stundum muna það að kvenmenn tala íslensku! Og nei, ég er ekki hommi, þó svo að mér þætti það skemmtilegt að dylla mér niður laugaveginn í stuttu pilsi ( ég meina, ímyndiði ykkur svipinn á fólkinu :´D ), en ég er heldur ekki eitthvað heimskt tröll sem gengur um til að vernda sitt umráðarsvæði!

 Ég var í góðra vina hópi um daginn, og þeir drengir sem sátu þarna með voru ýmist kallaðir hvorugkyns! Við vorum ekki eins og hinir strákarnir, það var semsagt hægt að tala við okkur! En við vorum óneitanlega ekki eins og stelpurnar heldur, neinei, við fórum ekki að "tíkast" við hvern annan! Svo hvorugkyn var valið! Ég veit nú ekki alveg hvað mér á að finnast um það, en ég var allavegana ekki settur í hópinn þar sem heimsku tröllin voru ;D

Ég er knúsari, mér finnst gott að knúsa fólk, og ef það er eitt sem ég þoli ekki þá er það fólk sem bendir og hrópar : AHAHA, þú ert að faðma stelpu!

Bíddu, þarfnast þú athygli vinurinn, eða? þykir þér það svona ægilega skrítið að tveir vinir geti sýnt hvort öðru umhyggju án þess að meira gangi á svo skrítið að þú þarft að auglýsa þörf þína á einhverju slíku!? Mér finnst slíkt ömurlegt!

En aftur að spurningu dagsins!

Nei, erfðfræðirannsóknir sýna það skýrt og greinilega að karlar og konur eru af sömu tegund! En myndi sálfræðingur segja það sama?

Það, hinsvegar, er spurning sem ég get með engu móti svarað, enda aðeins rétt nógu mikið í sambandi við sálfræðilegu hliðina til þess að halda geðheilsunni! eða hvað? kannski er ég bara jafn geðbilaður og allir aðrir karlmenn!? Hver veit?

 En nóg af bulli í þetta skiptið, fékk bara svona hugljómun við að vera kallaður drusla í fyrsta skiptið ( takk Ke ;D )!

Aðalbjörn


» 25 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 20:03:01 / Aðalbjörn

Tilraun til að gera sumrinu skil :D

  Úff, Þó líði ár og öld... ja, í þetta skiptið aðeins mánuðir, en ojæja, best að demba sér í svona, ja, frekar innihaldsmikið blogg eftir sumarið :D

 

Þegar skólinn var búinn var komið að fyrsta ævintýri sumarsins, skólaferðalagi 9-10 bekkjar :D Eftir tvo daga af vinnu í Ásbyrgi lögðum við af stað með svakalegri, skærrauðri flugvél, eitt það mest ógnvekjandi fyrirbæri sem ég hef augum litið. Þegar við vorum búin að vera í loftinu í þó nokkurn tíma varð ég fyrir þeirri óþægilegu reynslu að halda bara að við myndum nauðlenda, beint fyrir ofan Kastrup!!! ( flugvellinum í Köben :/ ). Því fylgdi náttúrulega öskur og alles, bætti ekki úr skák að vissar elskur voru að hrópa “VIÐ HRÖPUM; VIÐ HRÖPUM”!!! Sessunauturinn gapti á mig, að því ég held skelfingu, honum brá held ég heldur þegar ég öskraði í eyrað á honum við lendingu :D Eeen, þetta voru frábærir dagar, mörg skemmtileg atvik, samanber þegar við Chanee vorum spurð hvort við værum hjón, eða sko, ég var spurður hvort hún væri konan mín, feministinn í þessu fólki :/ Þegar við vorum búin að neyta því sterklega þá fór hann nú bara að gefa mér dýrindis ráð hvernig ég ætti að koma mér í mjúkinn hjá kellu, eitthvað um kók í bauk og baknudd, það var náttúrulega gengið frá því með tilhlýðandi hlátri, og svona “vadðef***” augngotum. Við náttúrulega lofuðum því að segja ekki nokkrum manni frá þessu. En svo hittum við lifandi manneskju, og þið getið svona nokkurnveginn fattað hvað gerðist næst :D Annars gerðist ýmislegt annað skemmtilegt, við fórum í dýragarðinn, þar sem ég gerði mig að fífli með því að bjóða baldri ís, gaurinn varð svo skítugur eftir hann að afgreiðslumaðurinn spurði hvort það væri allt í lagi með hann.Við fórum í Tívolí, ég týndi gemsanum mínum L einhver kona stal honum, lét mig borga helling af símtölum áður en við lokuðum honum. Hún svaraði þegar maður hringdi, gaf okkur upp eitthvað bull netfang, vildi ekki gefa okkur upp heimasímann og hvaðeina... :/ þannig að nú á ég nýjan síma og alles, eini ljósi punkturinn, kunni samt ákaflega vel við hinn símann :/ Mamma, sem fór til danmerkur vikuna eftir, lenti í svo miklu veseni að hún keypti óvart bleikan síma, ég náttúrulega reyndi að vera þakklátur, sem ég var alveg :D, en mamma sagði sko að þetta gengi ekki og fékk að skipta honum :DBakken var frábært, það er svona tívolí með geggjuðum tækjum, ekki eins stórum og flottum og í Tívolí, en raðirnar voru helmingi styttri og þau voru alveg jafn skemmtileg, til dæmis elsti rússíbani í Evrópu :D:D:D En þar varð Gríma veik í einu tækinu og ég var svo bara restina af deginum með henni, við fórum bara í einhver tæki sem voru góð fyrir magann, sem hentar mér mjög vel þar sem ég er ekkert sérlega sterkur í þeirri deildinni ( það er að segja í tívolí L )Við fórum á allskonar söfn, sum betri en önnur, ég varð skíthræddur í draugahúsunum, bæði í bakken, þar sem ég lá hálf grenjandi í kjöltunni á Einari, en hann sem hafði orðið svo hræddur fyrst þegar hann fór hló alla leiðina í þetta skiptið. Ég verð kannski kallaður hræðslupúki eftir þetta, en er hægt að neyta því að ef maður ákveður að hafa gaman, þá verður maður að ýkja allar tilfinningar :DVaxmyndasafnið var geggjað, siglingin frábær, öll hin söfnin flott, hafði sérstaklega gaman af grettusafninu sem Jónsi náði að mynda, þar sem maður var látinn gretta sig framan í spegil, þess alsóvitandi að hinum megin stæði fólk í þvílíkum hlátrasköllum :D Við hittum líka einhverja krakka úr skóla í Ballerup, sem var alveg ágætt, bara frekar vandræðalegt þar sem þau töluðu verri ensku en við, sem þýddi aftur að það var þvílík þögn í hópunum +  það að nafnið mitt var skrifað sem Affalbjörn L   En þótt þessi ferð hafi verið alveg æðisleg þá var samt gott að komast heim. Aðeins nokkrum dögum eftir heimför hófst vinnan aftur, og fyrir þá sem ekki vita þá vinn ég í Versluninni Ásbyrgi, sem er ágætisvinna, ég fékk meira að segja að steikja tvo hamborgara í morgun  * stoltið * :D samt hálfgerð antík, búðarkassarnir sem við notum eru ennþá með aurateljara ;Þ Þrátt fyrir að vera í fullri vinnu þá hef ég samt fengið frí eina og eina helgi, sem ég nýti í annað hvort ættar- eða íþróttamót.  Bakkaröltið var frábært, alltaf gaman að hitta ættingjana :D Dagana 5-8 Júlí var maður svo staddur í Kópavogi, og jafnvel þó þið, lesendur góðir, trúið því ekki, þá var ég að keppa í Hanbolta á stóra landsmótinu, með bæði gömlum og ungum vinum ( og með gömlum á ég við gamla karla eins og pabba ;D ), en við vorum þarna saman strákarnir úr handboltanum á húsavík og einhverjir gamlir karlar sem fengust í leikinn, og á móti hinum ýmsu súpuliðum, með álíka skrautlegum liðsmönnum og við :D ég fyllti í markið, varði jafnvel á móti tveimur marmilljónavirðiíhandbolta körlum *mont**mont*, var reyndar á móti öðrum markmanni sem stóð sig með príði, en sá allra skemmtilegasti á vellinum hlýtur þó að vera hann faðir minn, sem var orðinn svo þreyttur í einum leiknum að hann bara lagðist ofan á dreng einn varla árum eldri en ég og var þar bara þangað til greyið náði að skríða undan með hjálp liðsfélaga sinna. Enginn sagði þó neitt við þessu, allir skilja það að gamlir menn þurfa sína hvíld ;D  Það má svo ekki gleyma aðal sjóvinu, haldiði ekki að kallinn hafi verið fánaberi UNÞ :D Setningarathöfnin var geggjuð, ég kom í sjónvarpinu og allt saman. Fyrst þurftum við að ganga inn á völlinn í réttri röð, fyrst norðurland, og gengum við hlið við hlið, ég og fánaberi HSÞ. Þegar keppendur voru gengnir af vellinum voru ákveðin lið fengin til að taka þátt í athöfn sem fól í sér að hlaupa út á völlinn og kveikja á blysum við merki. Ég og félagar mínir í HSÞ vorum að sjálfsögðu ein af þeim fjórum liðum og hlupum og stilltum okkur upp eins og til var ætlast, en áður en merkið kom virðist eitthvað hafa farið úrskeiðis, því allt í einu byrjuðu blysin að kvikna í engri sérstakri röð, og allt fór í belg og biðu. En aðalatriðið var að hafa gaman af því, ekki satt :D Einnig fór ég á Sumarleika HSÞ, og þar sem ég er nú fullgildur meðlimur nýs félags, Héraðssambands Þingeyinga, þá varð ég að sjálfsögðu að bjóða mig fram sem sjálfboðaliða. Stóð uppréttur alla helgina og endaði það að sjálfsögðu í því að ég þurfti að fá veikindafrí úr vinnu nokkra daga á eftir, maður er að verða svo gamall :/ Ásbyrgismótið var að venju frábært, geggjað fjör með krökkunum, hékk náttúrulega með hverjum sem vildi hlusta á minn stóra kjaft, eða tala meira en ég, og þakka ég bæði Unni og Bryndísi fyrir það, þið eruð frábærar. Unglingalandsmótið var að venju frábært, allt gekk svo vel að við komumst ekki einu sinni í blöðin! Hreppti annað sætið í skák, bara gaman, fékk að keppa við heimsmeistara og alles ;D böllin voru fín og krakkarnir skemmtilegir, ekkert fleira að segja frá því nema það að krökkunum héðan gekk mjög vel :D Og svo það síðasta, í gærmorgun gekk ég inn á tannlæknastofu teits til að mæta örlögunum, og einum og hálfum tíma síðar gekk ég út með skínandi bros og nýtt glingur á tönnunum, karlinn er kominn með spangir :D Annars er ekket fleira að frétta, svona í bili allavegana...Vonum að eitthvað frétthæft komi uppá næstu mánuðina svo ég geti bloggað aftur ;D Vona að sumarfríið ykkar endi vel, Aðalbjörn :D Ps. Var svona pínu að flíta mér, gæti komið niður á bæði stafsetningu og rithætti :/ PSPS. Fyrir þá sem eru ennþá forvitnir, ég komst í gegnum öll samrænduprófin sem ég reyndi við ;D

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

31.05.2007 23:23:43 / Aðalbjörn

Fullkominn galli :D

Já, hvað á maður ekki bara að þegja yfir þessu? ekkert blogg í... meira en mánuð...! Það er eitthvað nýtt... :S

 Átti afmæli hérna um daginn... eins gott að passa sig núna mar, 15 ár frá fæðingu og sakhæfur sem fullorðinn.

 Nú er ég ekki í skapi fyrir neitt "gleðilegt og bjart", heldur finn ég mig knúinn til að kvarta. eins og þið flest vitið er ég 15 ára. Það gerðist þann 22. maí síðastliðinn. Það er nú reyndar ekki kvörtunarefni mitt, bara eðlilegur hlutur að eldast og ekkert athugavert við það... NEMA; Þau réttindi sem maður fær við vissan aldur finnst mér alveg hreint út í hött!! Ég meina, hér áður fyrr urðu krakkar fullorðnir við fermingu, eða það segja sögubækurnar okkur allavegana. Við þennan merkisviðburð í lífi allflestra byrjuðu krakkar að vinna og ýmislegt fleira hófst, þeir urðu að flytja að heiman oft á tíðum og urðu bara að fullorðnast nánast á óforskammarlegum tíma! þá var ekkert bull um að núna máttu þetta og núna máttu hitt, það bara gerðist.

 NÚNA hinsvegar er þetta allt komið í flækju! Mér er meira að segja sagt hvað ég megi horfa á í sjónvarpinu!! Í þjóðfélagsfræðinni sem ég tók nú að miklu leiti nú í vor stendur að við tólf og sextán ára aldurinn fái maður rétt til þess að horfa á kvikmyndir og annað sjónvarpsefni ætlað þeim aldurshópi og uppúr. Það er þannig ætlast til þess að ekkert barn undir þeim aldri hafi þroska né beinlínis þor til þess að horfa á þessar myndir og geti beinlínis orðið fyrir sálarskaða við áhorf. Ég ætla ekkert að véfengja þá sérfræðikunnáttu allra þeirra sem vinna við að horfa á bíómyndir og ákvarða hvað sé leifilegt og hvað ekki, en guð má vita að ég skil stundum ekki þær ákvarðanir. Sem dæmi má nefna að nú nýlega var sýnd í sjónvarpinu mynd sem innihélt lítið sem ekkert ofbeldi og einu sinni sást í blóð. Sú mynd var af mikilli visku ábyrgðarmanna bönnuð innan fjórtán. Svo sá ég hérna um áramótin íslenska mynd sem var undir nafninu "strákarnir okkar". Hún var svosem allt í lagi, ég meina, jafnvel þótt hún innihéldi ófáar kynlífssenurnar og útsýnisferð um sturtuklefana hjá körlunum, þá var ekkert aldurstakmark... hvað gæti þá verið að henni? Svo má líka að mínu mati bara sleppa þessu yfir höfuð, því þótt þeir segi okkur að þetta sé jú bannað með lögum að horfa á myndir eða sjónvarp undir aldurstakmarki, þá er þetta nú bara svona, þið vitið, meira leiðarvísir en reglur... er það ekki annars. Það fer allavegana enginn eftir þessu. Ég velti því stundum fyrir mér hvort þetta sé bara svona til skreytingar, þetta er svo smart, allar hinar þjóðirnar hafa svona, af hverju ekki við... grænt rautt og gult, fer svo vel yfir hátíðarnar :/

 Og svo er það fjórtán ára reglan, þið vitið nú öll hver hún er, og þið sem vitið það ekki... enn eitt sem ég mun ekki fara nánar útí ;) Mér finnst hún mætti vera hærri, þetta eru í rauninni bara mörk fyrir miklu eldra fólk, mikið yngra fólki kemur henni nú bara helst ekkert við!!

Og svo koma mannréttindarmálin. Ég spyr: alþjóðalög segja til um að einstaklingur sé ekki fullorðinn fyrr en hann er 18 ára, er þá rétt að hann byrji að hljóta refsingar sem eru jafngildar fullorðnum ( 18+ ) 15 ára? Er það rétt að barn ríkið leggi byrði á BARN án þess að veita því nein auka réttindi. Ég meina, það má kæra þig sem fullorðinn einstakling 15 ára, samt ertu ekki fullorðinn einstaklingur samkvæmt íslenskum lögum fyrr en þú ert orðinn 18 ára. Ef við tengjum þetta nú við 16 ára regluna, semsagt að þá þurfir þú að byrja að borga skatta. Er það réttlátt að börn séu látin borga fyrir réttindi sem þeim hlotnast ekki fyrr en 18 ára? ég veit að börn fá sín réttindi og allt það útúr skattakerfinu, en það eru líka réttindi sem foreldrar okkar hafa barist fyrir. Ef við fáum ekki full réttindi sem einstaklingur við 18 ára aldurinn þá finnst mér það óréttlæti að við þurfum að taka fullan þátt í að halda uppi samfélagi sem við erum ekki einu sinni fullgildir aðilar að í heil 2 ár í viðbót. Ég bar þessa spurningu upp við matarborðið hjá ættfólki mínu og ég fékk það svar að það væri bara heilbrigt fyrir fólk að byrja að taka þátt, það efldi ábyrgðarkennd... og svo er fæst fólk byrjað að vinna við þennan aldur nema til þess rétt að fá smá vasapening!

Já einmitt!!!

Ég kjálkabraut mig nánast, hann skall svo hart í gólfið!! Ég sagði það ekki þá, en eftir smá umhugsun þá ákvað ég að koma skoðun minni á framfæri hér. Þetta fólk er nú náskylt mér, og nánast allt hafði það alist upp í sveit. Þau hafa örugglega öll upplifað það að taka virkan þátt í samfélaginu svona ung og allt það... enda urðu þau fullorðnir einstaklingar 16 ára samkvæmt þáverandi lögum. Enda eins og systir móður minnar sagði um helgina; "Fimmtán ára... Vá hvað þetta líður hratt... (en þá kom bomban!!!)" þá var ég nú bara orðinn fullorðin".

Hvað á ég að lesa úr þessu? Er ég eitthvað vanþroska miðað við hana þá? Er sú staðreynd að foreldrar mínir eru báðir vel mentaðir og í góðum og ágætlega launuðum störfum og að þeir geti veitt mér hitt og þetta sem henni gafst ekki samasemmerki að ég þroskist eitthvað hægar en hún?

Nei

Auðvitað þýðir það ekki að ég þroskist eitthvað hægar! Hún hefur kannski meint að hún hafi upplifað sig sem fullorðin þá, en það er samt þess virði að hugsa aðeins um þetta!

og svo með atvinnumálin. Við getum ekki gert eins og börnin í 101, að búa hjá foreldrum okkar upp undir þrítugt. Við verðum að kaupa matinn okkar sjálf, við verðum að leigja húsnæði sjálf, við þurfum í rauninni að gera nánast allt sjálf! Þetta finnst mér vera mesti gallinn í kerfinu. Svona er bókstaflega verið að mismuna fólki eftir búsetu! Þetta er alveg hreint ótrúlegt, að 16 ára krakkar þurfi á sumum stöðum að flytja að heiman, en aðrir krakkar geta lifað í örygginu heima hjá sér eins lengi og þeir vilja. Að sumir foreldrar fái að halda börnum sínum þar til þau verði sjálfráða en sumir ekki!!

En vitiði hvað, ég nenni ekki að pæla í þessu lengur. Kannski er það bara málið, að þegar maður fer að pæla í einhverju nógu mikið finnur maður alltaf galla á öllu, sama hvað það er. Og kannski er það fullkomleikinn, að ekkert er of fullkomið að það sé ekki neinn galli á því, og þannig yrði það ófullkomið. Að ekkert er óbætanlegt, og veiti þannig heiminum einhvern lit!

Ég segi bara, hættum að leitast til þess að verða fullkomin, því ég er á þeirri skoðun að því meira sem við leitum, því fullkomnara þarf það að vera til þess að við verðum sátt, og því fullkomnari sem við leitumst til þess að verða, þeim mun einsleitari verðum við, þar til heimurinn verður eins, allir hugsa eins og haga sér eins í sífelldri leit sinni af fullkomnleika sem gerir okkur bara óánægðari og óánægðari með hverjum deginum! Og er það fullkomið, ef allir væru eins?

NEI

Mín lokaorð eru þessi; Hættið að reyna við fullkomleikann, hann er ekki til, og því meira sem við reynum, því ófullkomnari verðum við í okkar eigin augum. Sannleikurinn er sá að enginn er fullkominn og við ættum að fagna því, í því fellst hinn fullkomni galli, að gallarnir séu það sem gerir okkur fullkomin !!


» 17 hafa sagt sína skoðun

21.04.2007 18:34:55 / Aðalbjörn

Lendi alltaf í veseni við að ákveða hvað skal setja hér!!!

Sælt veri fólkið,

 Hef ekki mikinn tíma til að rita hérna inn, en læt samt vita af atburðum síðustu daga ;)

 Mamma náttúrulega á kafi í pólitíkinni, en það er bara gaman. Það er alveg mögnuð tilfinning þegar landsþekktir stjórnmálamenn og þjóðþekktar þingkonur labba framhjá manni, snúa sér svo við og tala um að þekkja svipinn. Bara síðast á fimmtudag gekk Jónína Bjartmars, umhverfisráðherra, upp að mér og sagði að þennan svip þekkti hún :D Hinsvegar setti ég upp bæði framsóknarmerki og framsóknarsvip þegar ég vissi af formanni Vinstri Grænna, og þegar herra Steingrímu J. kallinn sá mig var hann fljótur að forða sér, hann hefur vitað að ef hann hefði komið til máls við mig hefði hann ekki átt von á góðu :klikk: ætli einhver hafði varað hann við !?

 Annars var ég á leiðinni á handboltaæfingu á miðvikudaginn þegar ég fékk bráðaofnæmiskast og fór að finna fyrir bæði verkjum í bringu og lungum, auk þess að ná ekki andanum. Ég hef nú aldrei fengið annað eins kast og fór pabbi með mig inn á spítala um leið og við komum í bæinn. Ein hjúkkan beið við innganginn og dreif mig upp á eina stofuna þar sem heill hellingur af fólki beið, fleiri hjúkkur, sjúkraliði, læknir og loks lögreglan. Fékk ég meðhöndlun þar, meðal annars adrenalínpenna og vökva í æð auk röntgen og fleira. Þurfti ég að dúsa inni um nóttina, er svosem ekki viss hvort það hafi verið slæmur eða góður hlutur :$ var náttúrulega vont að veikjast svona, en ég var meðhöndlaður eins og Dalai Lama :haha: Fékk svo að fara heim á fimmtudag og flitja ræðuna þar (kynning á þjóðgarðsskóla).

Var kannski svolítið skondið við þetta hvað grey Friðbjörn og Hjalti biðu lengi dauðhræddir um kallinn útí bíl :$

Var svo farinn að frískast í morgun og fékk að fara á stærðfræðikeppni á Húsavík, jafnvel þó að ég fái ekki að fara í handbolta á morgun :cry: gekk það bara vel, lenti Ke í 7 sæti og fékk 3,000 kall að launum, en ég í 3 og fékk 10,000 kall, auk veitinga :haha: Fékk líka að kíkja á Húsavíkurmótið aðeins :D

En ekki meira í bili,

Aðalbjörn

P.S. gat ekki stillt mig :haha:

 

 

X við B
xB

» 19 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 15:57:01 / Aðalbjörn

ÚPPSS :$

hehe, komst að sjálfsögðu að því að ég hafði ekki bloggað í meira en heilan mánuð! ég ætti bara að skammast mín!! þetta vikuthing er ekki að gera sig :S

 En annars bara nýjustu fréttir!

 Fimtudagurinn 8 mars: Fór til Reykjavíkur með Mömmu til að taka á móti verðlaunum fyrir þarna ritgerðardæmið; Unglingurinn, lýðræði og Heimabyggðin,  En það var alveg hreint stórkostleg athöfn, að minnsta kosti tíu fermetra salur og hátalarakerfi sem virkaði næstum. Svo má náttúrulega ekki gleyma okkar ástkæra landbúnaðarráðherra sem er svo samviskusamur að hann ákvað að vera aðeins lengur á þingi að leika við hina þingmennina, oh, svo mikið krútt hann Guðni. Það má heldur ekki gleyma öllun meðlimum stjórnar þessarar stórglæsilegu verðlaunaafhendingu, hún var nefnilega nánast öll nær dauða en lífi, einn að gangast undir hjartaskurðaðgerð og annar með gubbupest, en það mætti þó einn til að hjálpa Frúnni, henni Fríðu Völu, en það vildi svo til að hann hafði ákveðið að gleraugun sín væru veik líka og skildi þau eftir heima. Við önduðum þó léttar þegar við sáum að alheimsfegurðardrottningin hún Unnur Birna hafði ákveðið að mæta, oh, svo mjúkar hendur!!

 En eftir þessa athöfn var bara farið í ótal heimsóknir til kærra ættingja! var svo flogið heim um miðjan dag 9 mars og skutlast a laugamótið, en þar bjargaði ég náttlega heiðri skólanns og vann fyrir okkur stuðningsbikarinn þennan síðasta klukkutíma sem ég var:$

Um síðustu helgi var svo aftur farið suður. Fór ég í bíó 2 á laugardeginum, Norbit og 300, stórgóðar myndir, ég og Bjarki rétt mistum af hvor öðrum! Mamma eitthvað að stússast á einhverju frambjóðenda námskeiði ÁFRAM FRAMSÓKN og hvet ég alla sem hafa kosningarétt að kjósa hana, engin pressa þó, allir eiga að kjósa rétt og eftir sinni sannfæringu:haha:

 Kíktum líka eðeins í kolaportið, úff maður, það var varla pláss til að labba á milli standa, þetta var svo troðið:!:

Annars gengur lífið sinn vanagang, handboltinn er alveg hreint frábær, gítartímarnir hjá Villa krefjandi en skemmtilegir, skólinn á fullri ferð, stefni á þrjú samræmd próf, Íslensku stærðfræði og samfélagsfræði, og svo blómstrar félagslífið hérna í sveit og nágrenni.

En meira verður það ekki í bili!

Aðalbjörn

ps. skelli hérna mynd af mér og ungrfrú fallegu þegar ég finn hana, eins og er er hún tínd :^)


» 9 hafa sagt sína skoðun

10.02.2007 18:29:59 / Aðalbjörn

Slúðurdálkurinn Mitt Líf - 1 árgangur - eina \

Jæja, lítum nú aðeins á líf mitt þessar fáeinu vikur sem hafa liðið frá síðustu færslu.

 Ég verð að vera sammála frænku minni, ég er alltof latur við að skrifa hérna inn. Heimanámið tekur sinn toll, ég fer til Húsavíkur tvisvar í viku, það er sífellt eitthvað að koma uppá og eftir þetta allt saman verður maður dauðþreyttur ( eða allavegana ég!!) Rak líka augun í Mánaðarins, og komst að því að ég hafði ekki gert neitt þar síðan í febrúar 2006 ( fyrir ári ) svo að ég lék mér að því. njótið!

 En að brýnni málum.

 Það var auðvitað farið á Söngvakeppni Samfés 2. FEB. Kristveig Halla og Íris Edda kepptu fyrir okkar hönd og stóðu sig frábærlega. Mikið klappað og fagnað að lokum þess atriðis!! Þær sungu mjög fjörugt lag og voru eiginlega með eina atriðið sem gerði eitthvað annað en bara sitja/standa og singja, hefði án efa átt að fá athyglisverðasta atriðið, en sá titill fór því miður annað. En ég er náttúrulega frægur fyrir ósigrandi ónæmiskerfi og heppni þegar ég fer í svona ferðir, svo að auðvitað þurfti ég að fá einhverja pest og skila; Morgunmatnum, Hádegismatnum, kaffinu, snarlinu og "æðislegu" pizzunum sem við fengum beint fyrir utan í augsýn ALLRA. Ef ég hef einhverntíman skammast mín fyrir það hvernig ég er, þá var það þarna, greyið vörðurinn, sem auðvitað hafði verið að passa það að enginn slyppi í burtu!, spurði mig hvort ég væri FULLUR!!!! Mitt svar var náttúrulega bara að kasta afgöngum á skóna hans og biðja um kidda, sem til allrar hamingju kom mér til bjargar!! Algjör "riddari í hvítum skóm" hann kiddi:haha:!!

 Annars gekk heimferðin bara vel, þurfti ekki nema einu sinni að stoppa fyrir mig og það þurfti ekki nema ein stelpa fylgd í sjúkrabíl upp á FSA ( fjórðungsspítala Akureyrar!)! talandi um byrjendaheppni ( höfum aldrei farið á söngvakeppni Samfés áður, allavegana ekki ég!)

 

Annars hefur lítið gengið á, við fjölskildan skruppum á Eyrina núna um helgina, ég og pa þurftum að hitta tanna og mamma á fund, en á meðan sönglaði Helga " á skíðum skemmti ég mér"!!

 

Ekki meira markvert að segja frá að sinni, ef þið munið eftir einhverju þá endilega láta mig vita;)

Kv,

Aðalbjörn

PS. Ég stal myndinni af síðunni hennar Írisar: http://blog.central.is/irisedda- Vona bara að þú fyrirgefir mér!!:D

Image hosting by TinyPic

Söngvakeppni Samfés. FV: Björgvin, Einar, Friðbjörn, Jóhannes, Hlynur og ég!! Og svo eru náttúrulega stelpurnar okkar þarna fyrir neðan, Kristveig og Íris.


» 12 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 21:38:56 / Aðalbjörn

Ísland, Best Í Heimi!!!

Já nú hefur íslenska þjóðin enn og aftur sannað sig með stæl!!! Ekki hefur hún aðeins sigrað Evrópumeistara vora heldur tekið þá á ypponi og unnið á þeim fullnaðarsigur! Og eins og það væri ekki nóg þá gjörsamlega réðum við áhorfendum!! Geri aðrar þjóðir betur!

 

 



En þá að öðrum málum.

 

 



Jólin búin og maður byrjaður að brenna af hátíðarkílóin ;). Kepptum á móti Hetti frá Egilsstöðum í handbolta skömmu eftir áramót ( sem voru btw haldin með kostum á eyrinni!!). Ég varði nokkra bolta í fyrri leiknum, stóð í markinu allan tíman og auðvitað unnum við J seinni leikurinn var erfiðari og stóð Alli Jói í markinu mestallann tímann en við sigruðum að lokum!

 

 



Við lékum Gauragang aftur og gekk það þrusuvel, í kringum 70 mættu og sýningin gekk eins og smurð fyrir hjólum!! Friðbjörn stóð sig vel í hlutverki kúltúrsnauða apans Orms Óðinssonar, Íris eins og mótuð í hlutverk Lindu, Einar með skrítnu húfuna hans Ranúrs...Rúnars, Krisveigu í hlutverki Höllu, sem reyndar mætti ekki alltaf á réttum tíma, birtist í senum eins og regndropi úr heiðskýru lofti, en þó alltaf þar sem ský voru nærri!! Skyldi einhver hvað ég var að bulla?? NEI!! Jæja gott, þá virkaði það!!

 

 



Annars er fátt að gerast þessa dagana, presthjónin orðin tveggja sona foreldrar, það styttist í baunina hennar Svönu, Sigga litla er í heimsókn, von er á heimsókn ónefnds aðila frá Húsavík, daglegt líf heldur áfram, próflestur í kvöld, danska á morgun og allt í sama farinu bara!!

 

 



Með von um góða daga, vikur, mánuði og ár ( allt eftir því hvað það tekur mig langan tíma að skrifa næsta blogg, þetta tók mig nú tímann, úff!!)

 

 



Aðalbjörn Jóhannsson, sem kveður með stæl!

 

 



Ps. Til Annýar! Fann enga mynd, verð bara að leita betur!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Það er bara ég
Minnz *Elska vini mína *Ég hata fólk sem leggur aðra í einelti ( eins og Ke ;D ) *Ánægður með lífið eins og það er *Ýmislegt sem ég gæti sagt við gaurana sem stjórna prósessinu... "Minn tími mun koma!!" *Spila á Gítar, hef reynt að spila á röddina á mér, gekk eitthvað ver að stilla hana... *Spila Handbolta, þriðja merkasta íþrótt íslandssögunnar á eftir Glímu og Skák ;D *Ég er anti-Fótboltabulla, heppinn ef ég þekki muninn á Liverpool og Manchester Un. *Ég er partur af crewinu... sama hvaða crew það er... þú verður bara að lifa með því vinur ;D *Ég veit betur en þú... þú bara veist það ekki ennþá :') *Ef farið er út í heimspekilegar umræður er ég með Lexa í liði... *Frjálslyndur kommúnisti, það er ég ;'D *Þekkiru mig eitthvað?
Heimsóknir
Í dag:  11  Alls: 38798
Klukkan
Dagatal
maí - 2012
S M Þ M F F L
12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031
FyrriNæsti